13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6432 í B-deild Alþingistíðinda. (5813)

353. mál, afnám misréttis gagnvart konum

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það hefur komið í ljós að það hefur þurft að leiðrétta þýðingu þannig að í staðinn fyrir orðið „misrétti“ standi mismunun. Ef enginn hefur við það að athuga að þetta sé leiðrétt með þessari ábendingu verður till. borin undir atkvæði með þessari leiðréttingu.