21.06.1985
Sameinað þing: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7102 í B-deild Alþingistíðinda. (6534)

Þinglausnir

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég veiti hér með forsrh., Steingrími Hermannssyni, umboð til þess að slíta Alþingi, 107. löggjafarþingi, fimmtudaginn 20. júní 1985 eða síðar.

Gert í Reykjavík, 14. júní 1985.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Ég óska þm. og starfsmönnum Alþingis velfarnaðar. Ég þakka samstarfið á löngu þingi og treysti því að við hittumst heil að hausti. Ég óska þjóðinni allri heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Steingrímur Hermannsson, mælti:

„Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.