18.12.1985
Neðri deild: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)

175. mál, almannatryggingar

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. heilbr.- og trn. um 175. mál, þ.e. breyting á lögum um almannatryggingar. Þetta frv. varðar áframhaldandi álagningu sjúkratryggingagjalds með hliðstæðum hætti og gert hefur verið undanfarin ár. Frv. er efnislega samhljóða lögum nr. 127/1985.

Ég sé ekki ástæðu til að skýra málið neitt frekar en gert hefur verið í framsögu en nál. er á þskj. 304 og þar leggur heilbr.- og trn. einróma til að frv. verði samþykkt óbreytt.