18.12.1985
Efri deild: 38. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)

194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Þar sem tillaga þess efnis að Alþingi verði gert kleift að fylgjast með rannsókn þess máls sem frv. tekur til hefur verið felld, styð ég frv. ekki. Ég greiði ekki atkvæði.

Frv. afgr. til Nd.