21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2110 í B-deild Alþingistíðinda. (1826)
Kosning í bankaráð Útvegsbanka Íslands
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Ég hef ekki dregið í efa að hér sé farið að lögum. Ég tók það fram fyrr í dag. En þegar bornir eru fram listar eins og gert er hér og menn hafa ekki tækifæri til að láta afstöðu sína koma í ljós er þetta eina leiðin sem þm. hafa til þess. Að auki hef ég gert örstuttar móralskar athugasemdir sem ég vona að hitti og virðast reyndar hafa hitt.