27.01.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2119 í B-deild Alþingistíðinda. (1849)

Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal tekið fram að haft verður fullt samráð við formenn þingflokka um tilhögun umræðu á morgun. Að loknum þessum fundi er þess óskað að formenn þingflokkanna komi til viðtals við forseta sameinaðs þings í skrifstofu hans.