27.01.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2119 í B-deild Alþingistíðinda. (1850)

Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Menn koma hér í stól hver á fætur öðrum og ræða vítt og breitt um hin ýmsu málefni og ekki er ljóst að neitt sérstakt mál sé á dagskrá nema svonefnd stólaskipti. Ég vil því nota þetta tækifæri og óska nýskipuðum utanrrh. velfarnaðar í starfi fyrir hönd Kvennalistans og jafnframt vil ég þakka fráfarandi utanrrh. prúðmennsku í sínu starfi þótt oft höfum við verið öndverðrar skoðunar.