04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (1965)

Leiga á flugvél Landhelgisgæslunnar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal taka fram að þessari umræðu verður auðvitað slitið og það eru komnar nokkrar mínútur fram yfir þann tíma sem samkvæmt þingsköpum átti að slíta þeim. Og það er eins með þessar umræður og hvaða umræður sem er. Þeim er slitið hvort sem einn eða annar þm. telur að þær hafi ekki skilað þeim árangri sem þm. vill.