28.02.1986
Neðri deild: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2936 í B-deild Alþingistíðinda. (2455)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég,les hér fyrst bréf sem forseta Nd. hefur borist:

„Reykjavík, 28. febrúar 1986.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Jón Sveinsson lögfræðingur, Akranesi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Alexander Stefánsson,

2. þm. Vesturl.“

Jón Sveinsson hefur setið á þingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Hann er mættur hér til þingfundar og ég býð Jón Sveinsson velkominn til starfa.