10.03.1986
Neðri deild: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3021 í B-deild Alþingistíðinda. (2562)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Það er að sjálfsögðu margt gott í þessu frv., en mörgu er líka ábótavant. Ég sé mér ekki fært að styðja það í þeim búningi sem það ber nú. Og þó að þessi 1. gr. líti sakleysislega út mun ég marka afstöðu mína til frv. nú með því að segja nei við þessa umræðu.