24.03.1986
Neðri deild: 68. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3299 í B-deild Alþingistíðinda. (2894)
372. mál, vinnudeila Mjólkurfræðingafélags Íslands
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Ég hef greitt atkvæði gegn því hér fyrr í kvöld að þetta mál sé tekið á dagskrá. Ég tel það ekkert erindi eiga hér inn. Þetta er mál sem mjólkurfræðingar og vinnuveitendur þeirra verða að útkljá sjálfir. Ég greiði ekki atkvæði um málið efnislega.