15.04.1986
Sameinað þing: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3818 í B-deild Alþingistíðinda. (3505)

388. mál, sparnaður í ráðuneytum

Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ferðakostnaður hefur verið greiddur eftir ákveðnum reglum. Ég hef ekki í höndum samanburð við aðrar þjóðir að því er þetta við varðar, en það er sjálfsagt að taka það til athugunar þannig að ferðakostnaður Íslendinga sem ferðast erlendis sé í sæmilegu samræmi við það sem gerist meðal annarra þjóða.