19.04.1986
Neðri deild: 89. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4229 í B-deild Alþingistíðinda. (3912)

320. mál, fasteigna- og skipasala

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 934 um frv. til l. um fasteigna- og skipasölu. Allshn. hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt óbreytt með þeim breytingum sem voru á frv. gerðar í Ed. Undir nál. skrifa Gunnar G. Schram, Guðrún Helgadóttir, Ólafur Þ. Þórðarson, Pálmi Jónsson og Friðjón Þórðarson.