22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4428 í B-deild Alþingistíðinda. (4179)

11. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Sú till. sem nú er verið að greiða atkvæði um er að sönnu framför frá fyrri afgreiðslu hv. allshn. á þessu máli. Till. gerir hins vegar lítið annað en að staðfesta það ástand sem í reynd ríkir nú í þessum málum. Hún fleygir mati á heimilisstörfum hvorki aftur á bak né áfram. Þess vegna greiði ég ekki atkvæði.