21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (4443)

1. mál, fjárlög 1986

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Þegar sú ákvörðun var tekin á sínum tíma að setja þennan útgjaldalið inn á fjárlög var það gert í samkomulagi við bændastéttina að tillögum Framsfl. Nú stendur sami flokkur og gerði tillögu um að þetta yrði tekið inn á fjárlög að tillögu um að þetta verði tekið út aftur. Ég fellst á skoðun hans og segi já.