18.12.1986
Efri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1973 í B-deild Alþingistíðinda. (1849)

Afgreiðsla mála í efri deild

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Forseti getur tekið undir það að það var nýtt í málinu fyrir hann einnig að ekki yrði kvöldfundur í hv. Nd. og þess vegna er greinilegt að það er nauðsynlegt að taka þetta mál til athugunar þó forseti vilji aðeins minna hv. þingdeildarmenn á að þessi hv. þingdeild getur unnið sjálfstætt án aðstoðar hv. Nd. ef því er að skipta.