20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2234 í B-deild Alþingistíðinda. (2145)

1. mál, fjárlög 1987

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér er um að tefla samgöngur við heilan landshluta. Það er með fádæmum að Alþingi skuli standa þannig að málum að tryggja ekki að hægt sé að halda uppi flugsamgöngum í lágmarki a.m.k. Ég harma þessa niðurstöðu og segi já.