26.01.1987
Neðri deild: 37. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2516 í B-deild Alþingistíðinda. (2325)

271. mál, Þróunarsjóður fyrir Færeyjar, Grænland og Ísland

Guðrún Agnarsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins láta þess getið hér vegna þess að ég er áheyrnarfulltrúi í hv. fjh.- og viðskn. en komst ekki til að sitja fund nefndarinnar, að ég styð þetta mál eindregið fyrir hönd Kvennalistans. Þetta er hið ágætasta mál.