28.10.1986
Sameinað þing: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í B-deild Alþingistíðinda. (291)

68. mál, skólamálaráð Reykjavíkur

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Þetta er hárrétt hjá hæstv. heilbrmrh. Til þess að losna við að reka fræðslustjórann í Reykjavík úr embætti var tekið það ráð (Heilbr.- og trmrh.: Þetta er rangt.) að gera embættið fyrst nokkurn veginn gagnslaust og leyfa því síðan að lifa.