16.03.1987
Neðri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4264 í B-deild Alþingistíðinda. (3935)

318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Menn geta auðvitað haft hvaða skoðun sem er á þessu máli og haft á því mismunandi prinsip-skoðanir. En ég mótmæli því harðlega að því sé lýst yfir að sú tillaga sem ég er hér flm. að ásamt fjórum eða fimm öðrum. þm. sé sýndarmennska og hana megi hér ekki ræða.