11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

Kristín Ástgeirsdóttir 3 vm LA

Frsm. kjörbréfanefndar (Haraldur Ólafsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Kristínar Ástgeirsdóttur. Hún er 3. varamaður landskjörinna þm. Kvennalistans, en 1. og 2. varamaður hafa tjáð forseta að þær geti ekki tekið sæti á þingi að þessu sinni.

Kristín Ástgeirsdóttir hefur áður setið á þessu þingi og þá sem varamaður hv. 11. þm. Reykv., en nú er hún sem sagt 3. landskjörinn varaþm. Nefndin mælir með að kjörbréfið verði samþykkt.