07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2690)

181. mál, stjórn fiskveiða

Hreggviður Jónsson:

Hæstv. forseti. Við í Borgarafl. höfum flutt fjöldann af brtt. sem hefðu verið til bóta við þá stjórn sem þessi lög eiga að framkvæma. Þær hafa allar verið felldar og fleiri þær tillögur sem hér hafa verið bornar upp og hafa þær þó verið til bóta við frv. eins og það er.

Við höfum einnig bent ítrekað á að frv. nær ekki þeim markmiðum sem því er ætlað að gera, þ.e. að stjórna veiðunum og stuðla að fiskvernd. Ég segi því nei.