07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2691)

181. mál, stjórn fiskveiða

Jón Sæmundur Sigurjónsson:

Herra forseti. Í trausti þess að skynsamlega verði staðið að málum í sambandi við nefnd þá sem talað er um í ákvæði til bráðabirgða þannig að hún megi verða okkur úti um betra fyrirkomulag um stjórn fiskveiða en við búum við í dag segi ég já.