13.01.1988
Neðri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3970 í B-deild Alþingistíðinda. (2775)

Frumvarp um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Auðvitað mætti ýmislegt um undirbúning þessa máls segja eins og margra fleiri. Það hefur verið gert hér. Ég ætla ekki að fara í það kjölfar. Ég met það mikils að orðið hefur samkomulag um að taka málið til skoðunar aftur í nefnd og mér finnst ekki við hæfi að vera að hafa mörg orðum stöðu málsins að öðru leyti og ég fagna því þeirri niðurstöðu sem orðið hefur.