08.02.1988
Sameinað þing: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4349 í B-deild Alþingistíðinda. (3004)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hafa borist tvö erindi, annars vegar kjörbréf 2. varamanns Framsfl. í Norðurl. v., Sverris Sveinssonar, sem tæki sæti í forföllum 1. þm. Norðurl. v., Páls Péturssonar, og hins vegar kjörbréf 3. varamanns Alþb. á Vesturl., Ríkharðs Brynjólfssonar, sem tæki sæti 4. þm. Vesturl., Skúla Alexanderssonar, í hans forföllum.

Kjörbréfanefnd hefur athugað bæði þessi kjörbréf og leggur til að þau verði samþykkt.