25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4860 í B-deild Alþingistíðinda. (3357)

280. mál, rannsóknarnefnd umferðarslysa

Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðherra. Ég heyri á hans máli, eins og hann reyndar gat um, að við erum sammála í þessum efnum. Ég vil þá aðeins ítreka hvatningu mína til hans að vera á verði og vakandi fyrir því að þessi nefnd verði skipuð því ég er sannfærð um að niðurstaðan verður sú að það verður talið raunhæft að skipa slíka nefnd. Og ég er sammála honum um að það á ekki að vera bara til þess að skipa nefndina heldur til þess að hún skili árangri.