03.11.1987
Sameinað þing: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

55. mál, fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við pyndingum

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég vil einungis þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör og vænti þess að vel verði að þessari vinnu staðið og samningurinn fullgiltur. Ég þakka þar með fyrir upplýsingarnar.