24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6118 í B-deild Alþingistíðinda. (4185)

371. mál, jöfnun á orkuverði

Forseti (Guðrún Helgadóttir):

Vegna orða hv. 2. þm. Austurl. vil ég leyfa mér að lesa úr 28. gr. þingskapa, en þar stendur:

„Við fyrri umræðu hefur flm. allt að 15 mínútum til framsögu fyrir tillögunni og aðrir þingmenn og ráðherrar allt að 8 mínútur. Hver ræðumaður má tala tvisvar.“