12.04.1988
Neðri deild: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6251 í B-deild Alþingistíðinda. (4307)

442. mál, jarðræktarlög

Eggert Haukdal:

Herra forseti. Þegar þetta mál var kynnt í þingflokki Sjálfstfl. lýsti ég andstöðu við það. Þetta vil ég láta koma fram við 1. umr. málsins. Þrátt fyrir að heyfengur hafi verið mikill undanfarandi ár eins og segir í grg. eru ástæður misjafnar á býlum og ekki er víst að góð tíð verði stöðugt áfram. Þá er og þess að geta að í þeim erfiðleikum sem nú eru á landsbyggðinni er þetta frv. ekki lausnarorðið.