14.04.1988
Sameinað þing: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6408 í B-deild Alþingistíðinda. (4413)

Fyrirspurn um viðskiptahalla

Guðmundur G. Þórarinsson:

Herra forseti. Aðeins til skýringar vil ég taka fram að það er rétt sem hér hefur komið fram að ég óskaði eftir að þessari fsp. væri frestað. Ég vil hins vegar taka undir þau orð hv. þm. Alberts Guðmundssonar að hér er mál sem er mjög brýnt og þarf að ræða. Það er hins vegar nokkuð langt síðan ég lagði þessa fsp. fram. Tölur hafa breyst síðan og ég óskaði eftir frestun á þessu máli til að skoða betur upplýsingar sem ég er að reyna að afla mér áður en málið verður rætt hér.