28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6910 í B-deild Alþingistíðinda. (4864)

481. mál, mengunarútbúnaður bifreiða

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Fyrirspurnin hefur vakið þarfar umræður um þetta mál og ég get fullvissað hv. 13. þm. Reykv. um að mönnum er nú ljóst að það er blýlaust bensínið sem kemur til landsins. Ég vil geta þess að ég skrifaði forsrh. þegar nefndin var skipuð, sem minnst var á, og benti á að þetta væri raunin.