11.11.1987
Neðri deild: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (546)

Þingstörf og fjarvera ráðherra og þingmanna

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég endurtek það, sem ég hef reyndar áður sagt í tilefni þessarar umræðu, að að sjálfsögðu verður efni þessarar þingskapaumræðu komið áleiðis og rætt við ráðherra og við formenn nefnda. Þingforsetar munu sjá til þess að það verði gert.