05.05.1988
Efri deild: 91. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7524 í B-deild Alþingistíðinda. (5605)

293. mál, áfengislög

Jóhann Einvarðsson:

Hæstv. forseti. Hér er einungis verið að heimila sölu áfengis að styrkleika innan við 10%. Ég get ekki fallist á að hér sé í raun um jafnhættulegt mál að ræða og ýmsir hafa viljað vera láta og í trausti þess að upplýsingar og fræðsla um hættuleg og skaðleg áhrif áfengis verði stóraukin segi ég já.