25.11.1987
Neðri deild: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í B-deild Alþingistíðinda. (843)

Frumvarp um breytingu á áfengislögum

Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):

Vegna þessara ummæla hv. 17. þm. Reykv. skal það fram tekið að eins og fram kemur á dagskránni er það mál sem hv. þm. minnist á, 3. dagskrármálið, um áfengislög. Það var ætlun forseta að taka það í þessari röð en að beiðni hæstv. menntmrh. er 4. dagskrármálið tekið fyrir. Það er gert ráð fyrir að um það verði mjög stutt umræða og þess vegna mun ég standa við það sem ég sagði við menntmrh. áðan. Hins vegar skal það tekið fram að 3. dagskrármálið verður þar á eftir.