31.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (1547)

20. mál, fræðsla barna

Jón Magnússon:

Það hefir komið fram breyt.till. við þetta frumv. frá meiri hluta fræðslumálanefndarinnar. Finst mér full ástæða til að taka þennan fyrirvara og lengja frestinn um 2 ár, þótt alt af geti verið álitamál, hve langur hann á að vera. En fræðslumálastjórinn álítur þetta geri hvorki til né frá. Ætla eg ekki að orðlengja um þetta.