18.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)

89. mál, varabiskup

Ráðherrann (H. H.):

Eg fæ eigi séð, hvers vegna svo mikið er haft á móti orðinu »vara-biskup«, og skil eg ekki að nein ófrelsishætta geti staðið af því fyrir landið eða kirkjuna, en annars þakka eg háttv. 1. þm. Rvík. (J. Þ.) fyrir undirtektir hans í málinu.