20.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1001 í B-deild Alþingistíðinda. (2666)

78. mál, fjármálanefnd

Júlíus Havsteen:

Eg hefi nú setið í mörg ár á þingi en eg veit þó engin dæmi til þess að 7 manna nefnd hafi verið kosin hér í Ed. Eg man eftir því, að það var einu sinni reynt, en þá varð einn háttv. þm. svo reiður, að hann fór burt af fundi.

Á hinn bóginn vaxa verk þingmanna svo mikið um síðari hluta þingsins að mér finst þeir hafa nóg að gera, þó þeir sé ekki hafðir svo margir í fjárlaganefnd.