01.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (441)

31. mál, hagfræðisskýrslur

Steingrímur Jónsson:

Eg álít að það hafi ekki mikla þýðingu, að kjósa sérstaka nefnd, því að 2 af þeim mönnum, er í verzlunarbókanefndinni sitja, myndu og fá sæti í hinni nýju nefnd. Auk þess snertir mál þetta sérstaklega kaupmenn og verzlunarmenn, og því eðlilegast, að það fari til sömu nefndar sem verzlunarbækurnar.