07.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (839)

70. mál, Skálholt

Framsögumaður (Ari Jónsson):

Jafnframt því, sem eg biðst afsökunar á því fyrir nefndarinnar hönd, að ekkert nefndarálit hefir komið fram við þessa umræðu, skal eg lýsa því yfir fyrir hönd nefndarinnar, að hún hefir orðið ásátt um að ráða hinni háttv. deild til þess að samþykkja frumv. óbreytt, enda þótt kipt hafi verið burt úr því skilyrðinu um hámark kaupverðsins. En væri farið að breyta frumv. nú á ný, þá yrði girt fyrir að frumvarpið yrði afgreitt frá þessu þingi.