25.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (1146)

12. mál, vantraustsyfirlýsing og ráðherraskipti

Björn Kristjánsson:

Eg vildi leyfa mér að skjóta því til forseta, hvort hann vildi ekki fresta fundi til morguns, þar sem ráðherra hefir mælst til hvíldar og orðið er nokkuð áliðið. Það virðist standa á litlu, hvort ráðherra er feldur í dag eða á morgun.