13.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)

67. mál, réttur kvenna

Flutningsmaður (Hannes Haf­stein):

Með því að engin breytingartillaga hefir komið fram við frumv. og það fekk svo góðar viðtökur hér við 1. umr., þá finn eg ekki ástæðu til að mæla frekar með málinu að sinni, en vænti þess, að hin háttv. deild sýni því sömu velvild, eins og við 1. umr.