27.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1468 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)

22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg er samdóma háttv. flutnm. (S. S.) um að afnema eigi eftirlaun ráðherra sem fyrst og er það af ástæðum, sem eg vil ekki fjölyrða um nú. Eg vil leyfa mér að leggja það til, að málinu sé vísað til nefndarinnar í stjórnarskrármálinu.