04.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)

9. mál, prentsmiðjur

Framsögum. meiri hl. (Bjarni Jónsson):

Þetta mál var þrautrætt, þegar það var til umr. síðast, svo að nú þarf ekki mikið um það að segja, enda þótt sumt hafi færst til verri vegar en eg hafði búist við. Eg get verið háttv. nefnd samdóma um það að bæta inn atriði um heimild fyrir stjórnina, til þess að semja um bókaskifti við erlend söfn. Eg legg til að hvorttveggja verði samþykt, breyt.till. og frumv.