07.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

31. mál, rottueitrun

Framsögum. (Björn Þorláksson):

Eg hefi áður tekið fram ástæðurnar fyrir frv. þessu, og því óþarft að endurtaka þær nú. Eg vil að eins geta þess, að nefndin vill ráða háttv. deild til að samþykkja frumv. með breytingum. Breytingar þessar eru smáar og miða flestar að því að skýra frumv. Óska eg að málinu verði vísað til 2. umr.