20.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (2741)

Erindi frávikins gæslustjóra

Kristján Jónsson:

Eg átti tal við hæstv. forseta í gær um þetta efni, og var hann þá fús að lesa bréf mitt upp í deildinni í dag. En í morgun átti eg tal við hann aftur, og þá bar hann brigður á, að þetta væri löglegt. Nú óska eg að heyra vilja deildarinnar í þessu máli, hvort hún vill heyra erindið eða ekki, og fyrir því mælist eg til, að hr. foreti skjóti spurningunni til úrlausnar deildarinnar.