27.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

92. mál, brúargerð á Jökulsá

Framsögum. Gunnar Ólafsson:

Eg gerði við fyrstu umr. þessa frumv. grein fyrir því og skýrði frá ástæðum til þess, að það er fram komið. Það mætti þá ekki mótspyrnu að ráði hér í deildinni. Nú hefir nefndin, sem í það var kosin, haft það til meðferðar, og orðið sammála um, að frumv. ætti fram að ganga. Það hefir ekkert nýtt fram komið í málinu, annað en það, sem nefndarálitið ber með sér og tekur fram. Eg sé því ekki ástæðu til að fjölyrða um málið að þessu sinni.