04.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í B-deild Alþingistíðinda. (466)

22. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands

Steingrímur Jónsson:

Eg hefi engu við að bæta, það sem eg var áður búinn að segja um efni málsins, en eg vildi gera svolitla leiðréttingu á orðum mínum eða athugasemd við þau, þar sem svo virðist, að háttvirtur þingmaður Skaftfellinga hafi misskilið þau. Orð mín voru um hið pólitíska ástand í landinu. Þeim var ekki beint til hans, heldur sögð alment.