21.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 851 í B-deild Alþingistíðinda. (643)

28. mál, sala kirkjujarða

Kristinn Daníelsson:

Mér finst þetta mál vera svo athugavert, að ekki sé rétt að það fari svo lítið íhugað út úr deildinni, og vil eg því stinga upp á að kosin verði nefnd til að íhuga það nokkru betur. Það er útlátalaust að kjósa þessa nefnd, en hinsvegar skiftir miklu máli um meðferð þessara jarða, sem hér er um að ræða.