15.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (1091)

77. mál, verðlag

Flutningsm. (Bjarni Jónsson):

Þetta litla frv. er tekið eftir skattamálanefndinni eldri, er eg gat um í sambandi við annað mál í gær. Eg hefi borið það fram fyrir þá sök, að ýmsir menn hafa skrifað mér, bæði úr mínu eigin kjördæmi og annarstaðar af landinu og óskað þess að þetta yrði að lögum sem fyrst.

Eg skal svo ekki orðlengja þetta frekar en vona að málið verði látið ganga viðstöðulaust í gegnum þingið.