17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (1121)

87. mál, strandferðabátar

Bjarni Jónsson:

Að eins örstutt athugasemd. Það var alls ekki mín meining að það væri sama, hvort landsmenn eða landið gerðu út skip. En hitt sagði eg, að á sama stæði, hvort landið hefði hana eða innlendur einstaklingur, með tilliti til þess, að hvorttveggja tryggir oss yfirráð yfir verzlunarvegunum.